Móðir, kærasta, ungfrú

Mitt líf...ekki þitt!

26.09.2008 22:03:17 / ungfruin

Laugardagskvöld...

Ég sit hérna ein og glápi á sjónvarpið... Adolf er í hanbolta og Óðinn Andri er sem betur fer sofnaður... hann er svo lasinn greyið... hann vaknaði í nótt með martöð, hann sá augu út um allt og vildi hvergi ver og alls ekki sofa... Adolf fékk hann þó til að sofna.. hann skreið svo upp í einhvertíman í nótt og ég fann strax að hann var með hita... ég mældi hann svo í morgun um hálf 9 og júbb... gæinn bara með 40°c. Ég er svo búin að vera að mæla hann reglulega í dag og hitnn fór 1 sinni niður fyrir 39°c. Ég gafst svo upp síðast á að reyna að koma í hann stíl svo að Adolf hoppaði í apótek í morgun og fékk mixtúru sem er hita lækkandi og verkjastillandi... En ekki var gagnið mikið af þessu... bæði lækkaði hitinn voða lítið og svo þegar ég ætlaði að gefa honum þetta í annað sinn þá spítti hann þessu og kúgaðist bara... svo minn var bara látinn sofa úr sér...:lol:

En það er allt of mikið búið að gerast síðan ég bloggaði síðast svo að ég nenni ekki að telja allt upp...

En núna eru rúmir 8 dagar þangað til við förum út til Ameríku og hérna eru skoðaðar myndir af henni Maiu Katrínu daglega og mikið talað um hvað á að gera í ameríku :)

Ég ákvað að byrja að blogga svona smá... kannski aðalega til að hafa eitthvað að gera... og kannski til að gefa þessu örfáu hræðum hérna á klakanum sem vilja fylgjast með okkur úti tækifæri til þess...

En ég nenni ekki meiru í bili...
-kata-

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 12:01:45 / ungfruin

Alveg að koma helgi...

Ekki að það skipti okkur óðinn einhverju máli... nema jú auðvitað fer hann Adolf okkar í frí eftir morgundaginn og við fáum rúmar 2 vikur öll saman... og ég held að við séum bara öll jafn spennt..
Við ætlum að byrja á því að bruna í borg óttans annað kvöld... og það er planað að fara í innfluningspartý á laugardagskvöld... Já Kata litla er að fara djamm í borginni.. það hef ég aldrei gert.. jú ég hef nú alveg kíkt á eins og einn eða tvo bari en það telst nú varla með... Adolf minn ætlar að fara með Kötu sína að djamma...einhver tíman er allt fyrst... Adolf fékk mömmu sína, ömmu Sollu til að passa Óðinn.. og auðvitað er hún til í það, enda frábær og svo góð til okku óda...

En já við ætlum að vera í viku í reykjavík eða þangað til á föstudaginn eftir viku.. þá er ferðini heitið vestur á land.. eða á Reykhóla þar sem við ætlum að taka þátt í fjölskyldudegi. Ætli við trítlum ekki heim eftir það og verðum hérna heima í nokkra daga eða alveg þangað til 18. júlí, þá er stefnan tekin á útilegu með Hafsteini og Huldu, og örugglega fleyrum, Í tilefni þess að Hafsteinn er 30 á morgun :)

Við Andri fengum góða heimsókn í gær.. Adda, Kristófer og Árdís og Heiða, Aldís og Andri  komu til okkar í gær, en við Adda og Heiða vorum mikið saman þegar ungarnir voru minni... já eða litlir.. Allir búnir að stækka og þroskast mikið og aðeins búið að fjölga í hópnum síðan við hittumst allar saman síðast...Óðinn átti mjög erfitt með þetta allt... það er ekki hans að deila dótinu sínu... en hann lagaðist aðeins þegar leið á ...

Við Andri erum svo búin að hanga inni í 3 daga, það er búið að rigna svo mikið og veðrið ekkert búið að vera spes...en núna er þetta allt að skána held ég..vonum það..ætli ég reyni ekki að taka til í bílnum á með hann leikur sér hérna á rólónum okkar... sjáum til hvað ég nenni..:lol:

En jæja ég held að þetta dugi í bili...
-kata-


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.06.2008 11:34:06 / ungfruin

Tími fyrir blogg

Jæja best að gefa sé loksins tíma til að blogga smá...
Það gerist nú ekkert svakalega mikið hjá mér þessa dagana en þó eitt og annað sem vert er að segja frá...
Byrjum á því að ég mæti ekki í vinnu aftur fyrr er 28. júlí! Ég er komin í sumarfrí :) Ég á svo frábæran yfirmann að hún gaf mér 4 vikur (2 auka, leiksólinn lokar í 2) í frí svo ég get verið með guttanum mínum. Við fjölskyldan verðum svo saman í 2 af þessum 4 og ég hlakka alveg óendanlega mikið til og ætla að njóta tímans vel.

Ég var bara ráðin til 15. ágúst (afmælisdagurinn minn) á leiksólanum og ekki vitað með haustið... Kvíðinn tók smá völd í einn eða tvo daga og ég varð mjög kvíðin hvað ég ætlaði þá að gera í hasut... en mér tókst að ýta því frá mér og hugsa bara með mér að þetta redast.. ég fæ vinnu... og Viti menn ég fékk að vita í gær að staðan sem var laus á leiksólanum í haust væri mín ef ég vildi... ég var nú ekki lengi að segja bara frábært já takk.. Vinnutíminn verður eitthvað breytilegur en þetta er 100% staða svo ég er mjög ánægð og glöð með það, enda líður mér mjög vel á þessum stað.

Við morgunverðarborðið áðan þá segir Óðinn minn við mig : ,, mamma, á eftir þá förum við saman í stóru flugvélina og hittum hana maiu katrínu!" ég var nú ekki alveg sammála því að það yrði á eftir en sagði honum að það væri í október.. hann sagði bara já ok... En ég er ekki viss um að hann skilji hvað það þíðir nákvæmlega... jú hann veit að það kemur þegar sumarið er búið... en hann er bara 3ja ára.. Mér datt í hug að búa til svona blað, þar sem ég set inn dagatal fyrir  ágúst september og október og leifi honum að merkja við þegar að því kemur og sumarfrí búið og allir að tala um haustið og svona... til að hjálpa honum að skilja þetta allt...


Ekki skrítið að hann vilji sem fyrst hitta þessa fallegu dömu :)

Það er nú ekki mikið annað sem er að frétta héðan í bili...þannig að ég held að ég láti þetta gott heita...
-kata-


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.06.2008 17:57:13 / ungfruin

Enn á lífi...

Og hef það fínnt...
Ég var spurð í gær hvort ég væri hætt að blogga.. Ég svaraði því að ég vri bara svo löt... En svo fór ég að hugsa... löt og ekki löt... ég vissi bara ekki á tímabili um hvað ég ætti að blogga... Lífið gekk mjög brösulega hjá mér og ég gerði ekkert alla daga nema skutla óðni í leiksólann og sækja hann aftur.. geg honum að borða og koma honum í rúmið... og hélt svo áfram að gera ekki neitt...
En núna þá er þetta allt miklu betra og kannski ég skrifi nokkrar línur hérna annarslagið..

Ég er sem sagt komin með yndislega vinnu... Ég er í sumarafleisingum á Leiksólanum Lundarsel
Þetta starf hentar mér mjög vel og ég vona innilega að ég fái að halda áfram þarna í vetur... En það á allt eftir að koma í ljós og ef ég verð ekki þarna í vetur þá verð ég að gera eitthvað annað skemmtilegt og frábært, ég er alveg sanfærð um það...

Þó ég sé sumarstarfsmaður þá er ég nú að nálgast sumarfríið mitt og verð í heilar 4 vikur með honum óda mínum og Adolf með okkur í 3. Það er lítið planað annað en að vera úti og leika og hafa það gott... kannski skreppa vestur á Reykhóla á fjölskyldudag sem verður haldinn í júlí.. Eitthvað ætllum við að skoða borgina og hennar nágreni líka.. En við ætlum að halda okkur innan eyjunnar okkar... allavegana ekki fara lengra en hrísey í sumar... Við erum á leið til Usa í október. öll saman, við Adolf og óðinn og svo mamma og Hjölli... Það verður frábært að komast út og hitta alla aftur.. já og svo hana Kötu mína í fyrsta sinn ...

Óðinn Andri er á ólafsfirði hjá pabba sínum þessa helgina... Hann kemur heim á mánudag þirðjudag sagði pabbi hans en ég veit svo ekkert meira... Pabbi hans er hérna fyrir norðan og verður í einhverja daga...Vona að strákurinn sé bara glaður og hef reyndar ekki trú á öðru...

Það er greinilegt að ég kann mér ekki hóf...
Í gær fórum við Adolf út að borða og fengum mjög svo góðan mat... Nema ég borðaði yfir mig og ég lá bara upp í sófa í gærkvöldi að kafna ég var svo södd...
Í dag ætlaði ég að vera voða dugleg að taka til hérna... í skápum og skúffum og svona... En nei ég rétt marði fataskápana og setti í vél.. skreið svo upp í sófa og rotaðist... svaf allt of lengi og veit ekki hvort eða hvernig ég sofna í kvöld...

Ég er hinsvegar orðin svöng núna hehe... en Adolf er sofnadi við hliðina á mér... ætla að fara ýta í hann svo við getum borðað eitthvað... og já ég passa mig í þetta skiptið að borða ekki svona mikið...
 -kata-


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 14:12:24 / ungfruin

Fimmtudagur


Ég veit aldrei hvernig ég á að byrja svona blogg...
En byrja nú bara samt...
Það er alveg óvenju mikið að gerast þessa dagana hjá mér... mér til mikillar gleði...
Í gær fór ég að sjálfsögðu með Andra í leiksólann.. skellti mér síðan í sund... Eftir það lá leið mín á fund hjá vinnumiðlun hjá henni Sigrúnu... Þessi fundur gekk mjög vel... er ekki komin með vinnu og veit í raun ekkert hvar ég á að leita...en ég fékk nýja von og hugsanlega nýtt tækifæri...ég er að verða agalega spennt og hlakka mikið til að ræða þetta við ráðgjafann minn sem ég hitti eftir mánuð eða svo... Ætla að reyna að gera mér samt ekki of milklar vonir.. svona ef allt fer til fjandans...
Eftir þennan góða fund skrapp ég að erindast aðeins og skoða málið betur... Svo heim í hádeigismat... Ég nennti svo ekki að hanga heima og fór út að þrífa bílinn... Ég náði svo í Andra minn fyrir 2 og við kíktum í heimsókn á ömmu leiksóla...leið okkar 3 lá svo í klippingu... guttinn að verða 3ja ára og ekki hægt að hafa allann þennan lubba... Hann trítlaði á eftir klippi manninum þegar hann var búin að bjóða honum sæti...settist í stólinn og sat GRAF kjurr ALLANN tímann sem klippi maðurinn var að... ég var alveg ó endanlega stolt af drengnum mínum... hann fékk svo sleikjó í verðlaun... reyndar fékk hann líka póstinn Pál bangsa frá ömmu sinni ... Við fórum svo út að hjóla...eða Andri hjólaði og ég labbaði með... kíkktu svo á mömmu og Hjölla þegar þau komu heim úr vinnu og hjálpuðum þeim að henda allskonar rusli og dóti. Andri fékk svo að gista hjá ömmu og afa í nótt....
Í morgun var svona vorsýning í leiksólanum hans og það byrjaði með söngi og síðan máttum við koma inn á deild að skoða myndir eftir krakkana og svona... Ég mamma og hjölli mættum og biðum spennt... krakkarnir byrjuðu að syngja..en nei ekki hann Andri minn... hann stóð bara þarna...svo sá hann mig og þá kom skeifa...hehe... hann tríttlaði svo til mín og vidi sko ekkert fari til krakkana að syngja...hann sýndi okkur svo deildina og allar myndrinar... ég klæddi hann svo út og ætlaði að kveðja en nei... ekki að ræða það..hann grét svo sárt litla skinnið... hann hélt svo fast í mig og vildi ekki sleppa...grét hátt og innilega...alveg sama hvað ég reyndi að semja við hann og tala hann til (sem virkar ALLTAF) ekki að ræða það...hann vildi fara með mér...ég fékk hann til að fara renna sér...en hann gerði það grátandi og kom svo aftur hlaupandi til mín...á endanum skildi ég hann bara eftir grátandi...úff það er allt of erfitt....ég veit nú svo sum að hann er lagi núna en samt... hann lætur aldrei svona illa...hefur oft reynt ýmislegt en hann hættir alltaf þegar ég tala við hann og sem við hann....
Ég var svo á leið heim þegar mér datt í hug að fara og pannta mér tíma í klippingu... ég labbaði inn og spurði hvort að hún ætti tíma handa mér fljótlega...sem fyrst bara sagði ég... ég komst að bara núna...eða það er að segja áðan hehe...svo að ég fékk bara klippingu strax...ekki slæmt það... skrapp svo að verla..sem er nú kannski ekki merkilegt... En mikið er ég fegin að vinna ekki í netto þessa dagana... úff..það er verið að breyta búðinni...eða snúa henni og það er allt útum allt og þvílíkur hávaði...
kom mér svo heim og sit þar núna... að drepast úr þreytu... með valkvíða... get ekki ákveðið hvort ég eigi að legja mig eða fara laga til og ger fínnt hérna... ég get gert það þegar Andri er kominn heim en ég get ekki lagt mig þá...ok ég er búin að ákveða mig..hehe...
Á morgun er svo sund og nudd (LOKSINS) og lítið annað planað... júhú komið helgarfrí þá heheh ekki að það skipti mig einhverju....ég er alla daga heima hvort sem er...
Læt þetta duga...
-kata-


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 08:44:59 / ungfruin

Þriðjudagur

Úff allt og langt síðan ég skrifaði hérna... En loksins gef ég mér tíma í það...
Held að ég láti punkta duga núna.
  • Bíllinn minn seldist.. 370.000... keypti hann á 320.000 í fyrra :haha:
  • Mér var sagt upp vinnuni...
  • Mamma kom heim eftir 4 vikur í usa... með fullt af dóti handa okkur óda..
  • Kata litla stækkar og dafnar og er bara falleg og yndisleg:)
  • Ég hætti að vinna..
  • Ég er atvinnulaus
æi það er ekki mikið annað sem ég man núna... kemur seinna... vonandi...

-kata-


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 15:00:34 / ungfruin

Orðin frænka :)

29. ferúar 2008 kl. 08:35 (13:35 ísl. tíma) kom í heiminn lítil dökkhærð dama. 16 merkur og 52 cm. Veit ekki betur en að öllum heilsist vel..
Já og hún er nafna mín8) Maia Katrín Rogers


Yndislega falleg....

» 7 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 18:09:26 / ungfruin

Fimmtudagur

Jæja vikan er að verða búin..ég enn á lífi og gengur bara þokkalega... Ég mundi ekkert setja mig á móti því að líða örlítið betur í vinnuni en þetta reddast...
Ég er lítið annað búin að gera en að vinna og sofa...
vinna á morgun, frí á laugardag og vinna svo á sunnudag...

Fór í sjúrkaþjálfun á þriðjudaginn og fer svo aftur á morgun...þetta tekur þokkalega á og gengur bara vel..
Hondan mín fór á sölu í gær.. það er sett á hana 450.000- svo að ef einhvern vantar góðan bíl þá er minn til sölu...skoða öll tilboð...
Mamma er svo í þessum skrifuðu orðum um borð í þotu icelandair á leið til New York... hún ætlar að vera með Deddu systir sem á nú að fara unga þessum krakka út... any minute now... En hún er skrifuð á laugardaginn 23. febrúar...  Hún fekk stöng fyrirmæli um að halda í sér þangað til mamma kæmi og ég held að það gangi bara áægtlega...Ég sagði reyndar að þetta barn kæmi ekki fyrr en 1. mars... hehe...ekki bjartsín..hehe...

En jæja ég ætlaði bara svona að henda inn smá línu til að láta vita af mér...
-kata-


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 22:23:33 / ungfruin

Sunnudagur

Jæja þá er afslöppun og hvíld að ljúka...við tekur vinna frá 8:00 í fyrramálið... Það eru blendnar tilfinningar... ég hlakka til að komast út að gera eitthvað...svona af viti... en kvíðinn er að gera mér lífið leitt...hann er erfiður andskoti þessi kvíði... Ég kvíði fyrir því að fá spurningar eins og : ,,Hvað, afhverju ertu ekkert búin að mæta í vinnuna? Ertu búin að vera lasin? hvað er búið að vera að?'' Mig langar ekkert að svara svona... ég ætla ekki að gera það... sorry það kemur þér ekki við... það er mitt mál...ég er búin að vera lasin já... ég kom með vottorð svo að ég er ekki að búa þetta til... Allavegana mundi læknirinn minn ekki skrifa vottorð fyrir einhverju sem væri ekkert...hehe... það tók hann 10 ár að láta mynda á mér bakið svo að hann er ekkert of gjafmildur á vottorð eða beiðnir þessi elska...
Ég kvíði því líka að takast á við daglegt líf... reyna að halda stressi í lámarki... Erfitt þar sem allt snýst um að vera hér eða þar á réttum tíma... drífa sig...flýta sér.. svona haltu áfram svo þú komir ekki of seint...úff...
Ég á sem betur fer yndislegan kærasta sem stendur með mér og hughreystir mig og hjálpar...ekki bara í þessu...heldur öllu... Mömmu og Hjölla hef ég líka alltaf með mér... þau gera allt fyrir mig til að hjálpa mér og auðvelda líf mitt... er þakklát fyrir að eiga þau að...
Ég vona bara að ég komist nokkuð vel í gengnum morgundaginn... Eftir það ætti leiðin bara að liggja upp á við...
Ég gæti skrifað endalaust hérna... en þá færi ég að skrifa eitthvað sem ég hef ekki ætlað mér að skrifa hérna...ekki stax allavegana...
Ég læt þetta duga í bili
-kata-


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 21:41:36 / ungfruin

Valentínusardagur

Dagur elskenda er víst í dag... Ekki amerískur dagur eins og svo margir halda... Er búinn að vera til í endalaust mörg ár..hehe... En byrjaði víst sem dagur í heiðinni trú en var síðan kendur við einhver biskup í ?Róm? Já en svo tóku peningaóðir og gráðugir ameríkanar upp á að segja fólki að þú verður sko að kaupa kort og blóm og konfekt og bangsa og og og handa elskunni þinni annars sko!!! Já og amerísku íslendingarnir við urðum að sjálfsögðu að gera eins... BULL!!! Mér finnst sko í góðu lagi að "halda uppá" þennan dag með því að hugsa extar fallaega til elskunar sinnar og kannski lauma fallegum orðum að hvort öðru.. eyða tíma saman og hlúa á ástinni... en ekki svona gjafa bull...það er ekki fyrir mig... Ég er yfir mig ástfangin og það minkar sko ekki þó að minn maður komi ekki með blóm og fleyra á þessum degi...hann er duglegur að gera það aðra daga og alveg óvænt og það finnst mér miklu meira rómó en eitthvað fyrir fram ákveðið....

En nóg með það...
 Ódi minn er enn veikur... já búinn að vera veikur síðan aðfaranótt miðvikudags.. með 40°c hita og minkar lítið þegar hann fær hitalækandi...en þetta er eitthvað að lagast... Ég giskaði nú á að þetta væri mislingabróðir en það kemur víst ekki í ljós fyrr en anaðkvöld...ef það koma útbrot þá er þetta það...annars bara óútskýrður hiti... Mér er í raun sama... Ég er náttúrulega í veiknidafríi svo að það kemur ekki að sök þó að hann sé heima með mér.. nema það að hann þolir ekki að hanga svona inni...

En jæja ég ætla að láta þetta duga í bili... nenni ekki að skrifa meira..enda meira en nóg í bili...




-kata-


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 16:54:32 / ungfruin

Mánudagur...

Enn ein helgin liðin og komin ný vika..

Ég byrjaði daginn á því að skella mér í klippingu og strípur... rosa gaman... karamellu-gilltar strípur.. topp og já TOPP og stitti það aðeins... ég kom rosa ánægð út.. líður vel með nýja hárið.. Mamma ætlaði ekki að þekkja mig hehe... Adolf ætlar að fá að svara mér á morgun hvað honum finnst HAHAHA hann er ROSALEGA vanafastur hehe... En það var nú ungur maður sem að var ekki alveg sáttur með þessa breytingu... Hann þekkti mig ekki fyrst... en svo sagði ég honum að e´g hefði verið í klippingu og þá skildi hann þetta... fór að tala um að maðurinn hefði klippt ljóta hárið í burtu og skilið góða eftir..með krókódílaskærum hehe... þetta sagði Hulda mákona Adolf honum þegar að hún var að klippa hann í janúar og honum fannst þetta ekkert smá merkilegt...minnugur ungur maður hér á ferð líka...Held nú að hann sætti sig alveg við þetta... 

Það gerist voða lítið þessa dagana..ég er bara heima þessa viku.. Sjúkraþjálfun á morgun og föstudaginn en ekkert hina dagana...nema hreifa sig og hugsa jákvætt...berjast við hausverk og vott af ógleði... En ég fe sennilega að vinna aftur á Föstudag eða laugardag...svo tekur lífið aftur við í næstu viku...

En jæja ég ætla að láta þetta duga í bili...

-kata- 


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 22:40:19 / ungfruin

Föstudagskvöld

Þetta verður stutt í kvöld...

Síðustu dagar hafa verið mjög erfiðir...ætla ekki að fara út í það hér...fólkið mitt veit hvað ég tala um eða fær allavegana að vita það á næstunni... Ekki hafa áhyggjur það kom ekkert fyrir...

Ég er komin í viku frí frá vinnuni og ætla að nýta það vel...

Ég ætla að byrja mánudaginn á því að fara í klippingu og strípur og reyna að gera mig sæta...hehe.. ætli ég fari ekki í plokkun líka í vikunni enda kominn tími til fyrir löngu...

En já það merkilegasta og besta er að ég er byrjuð í sjúkraþjálfun, byrjaði í gær... og fer aftur á þriðjudaginn...þetta legst bara vel í mig ég hlakka til að púla og vinna fyrir því að fá svo bót á mínum málum...

Við Óðinn erum bara 2 heima núna...hann farinn að sofa svo að ég er ein... en Adolf minn ætti nú að fara koma heim... fór út að borða og í bíó með strákunum...

Ég ætla svo að reyna að fara annaðkvöld með stelpunum út að borða og kannski eitthvað skrall...

Svo er Leikhús á sunnudaginn.. Við ætlum að fara og sjá Fló á skinni.. verður eflaust stuð..

jæja læt þetta duga...

-kata-


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 06:13:09 / ungfruin

Lítið að gerast...

Jújú Brynja mín ég get svosum hennt inn einni færslu eða svo...ég sit upp í sófa, með þessa bleiku í fanginu, Í náttbuxum, peysu af dolla og sokkum af honum líka, kókglas, vatnsglas og malt á borðinu og ælufötu á gólfinu...jebb ég er með ælupestina...úff... ódi minn ný búinn svo það var víst komið að mér...ég er nú reyndar aðeins að skána núna...ég hélt í alvöru að ég mundi ekki lifa gærkvöldið af...ég fékk svona skemmtilega verki í magann og ég hef bara sjalda fundið svona mikið til.... en þýðir víst lítið að væla um það...

Við fjölskyldan erum svo að fara til rvk á föstudaginn, eða mosó öllu heldur til að byrja með...eitthvað verðu nú kíkt í borgina og svona...

Svo er kallinn sem ætlar að leigja íbúðina mína senniega kominn til landsins og heyri vonandi frá honum á morgun... verð þá búin að koma íbúðinni í leigu áður en við förum..

 En jæja ég hef ekki orku í meira....blogga aftur fljótlega...leyfi ykkur að heyra hvað við bröllum skemmtilegt í borgini...

-kata- 


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 17:32:11 / ungfruin

2008

Gleðilegt ár!

Takk fyrir það gamla og allt það :)

Þetta ár byrjaði mjög vel, með kossi frá elskunni minni... vantaði reynda Óðinn minn en hann var hvort sem er sofandi svo það skipti ekki öllu;)  Við fengum svo einhverja vini hans Adolfs í heimsókn og síðan lá leiðin niðríbæ á palla í sjallanum.. Það var rosa stuð...rosa margir líka, of margir á tímabili.

Við fjölskildan skelltum okkur svo til óló á nýjársdag í mat og rólegheit... alltaf gott að koma þangað. Þar fékk ódi nokkra pakka í viðbót, þá sem ekki fóru með suður og var það bara voða gaman...

Við tók svo vinnan 2.jan og þetta er alltaf frekar rólegur tími hjá okkur sem betur fer því eftir svona langt frí þá er ekki auðvelt að fara á fullt að vinna 8 og hálfann tíma alla daga...

En ég bryjai á því þegar að ég kom úr fríi að byðja um meira frí hehe... erum að fara suður 18. jan og verðum til 27. jan. Tilgangurinn margþættur og nenni ekki að fara út í það hér...

Ég er svo víst ALVEG að fara bráðum að komast að í sjúkraþjálfuninnui sem ég fór með beiðni fyrir  um miðjan október!!! Ég er svo líka loksin loksins að fara á röntken (or some) á morgun.. það ávíst að mynda bak og lendar tíhí og ég vona að það verði eitthvað komið út úr því svona um það leiti sem ég kemst að hjá sj.þjálfaranum...Svo ræddi læknirinn eitthvað um eitthvað annað skann sem ég man ekkert hvað heitir... en vilddi bíða með það þangað til x-ray myndirnar koma og ég erkomin til sjúkraþjálfara.... Ég er voða glöð yfir því að eitthvað á loksins að gera í mínum málum...þetta gengur ekki, ég sef varla lengur og er alltaf þreytt...vinnan er helvíti þegar bakið er svona..en það þýðir lítið að væla...halda bara haus og horfa fram á við...núna er allt mjög bjart framundan og gaman að því :D 

En jæja ég ætla að fara elda einhver mat...eða huga að því allavegana... læt þetta duga í bili

-kata- 


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1210 dögum
Við fjölskyldan förum til usa
Klukkan
Dagsetning
29. janúar 2012